Fjárfestar31 maí 2026
Brim hf. selur hlut sinn í Polar Seafood Denmark A/S
Brim hf. hefur gengið frá samkomulagi um sölu á 50% hlut sínum í danska félaginu Polar Seafood Denmark A/S (PSD), en S-13 Holding ApS dótturfélag Brim hefur haldið á hlut Brims í PSD í Danmörku. Kaupandinn er grænlenska félagið Polar Seafood Greenland A/S sem er meðeigandi í félaginu. Samkomulagið er gert með fyrirvara um fjármögnun og samþykki opinberra eftirlitsaðila. Andivirði sölunnar er 925 milljónir danskra króna. Brim fjárfesti í félaginu í október 2022 og var kaupverðið 625 milljónir danskra króna. Polar Seafood Denmark A/S er sölufyrirtæki, vinnsluaðili og útflytjandi sjávarafurða úr Norður-Atlantshafi. Félögin tvö munu halda áfram góðu samstarfi eins og verið hefur undanfarin ár.