Fréttir31 mar 2023

Brim og Akraneskaupstaður ánægð með árangur af samstarfinu um Breið þróunarfélag og semja um framhald

Brim hf. og Akraneskaupstaður hafa skrifað undir samning um framhald á starfsemi Breiðar þróunarfélags til næstu þriggja og hálfs ára eða til loka árs 2026.

Breið þróunarfélag var stofnað í júlí 2020 og eru aðilar sammála um að verulegur og jákvæður árangur hafi verið af samstarfinu frá stofnun þess. Þann árangur má m.a. sjá í uppbyggingu nýsköpunarseturs og nýjum störfum sem hafa skapast á Akranesi í ýmsum greinum en þó aðallega rannsóknum og þróun. Varðandi þróun Breiðarinnar liggja fyrir niðurstöður hugmyndasamkeppni og vinningstillaga sem aðilar eru sammála um að leggja til grundvallar framtíðaruppbyggingu á svæðinu.

Akraneskaupstaðar og Brim eru sammála um að næsti áfangi samstarfsins um Breið þróunarfélag skuli gilda frá undirritun samkomulags þessa til ársloka 2026.  Eftirfarandi atriði eru sameiginleg markmið á árunum 2023 – 2026:

  1. Áfram verði unnið að því að efla starfsemi Breiðar þróunarfélags sem vettvangs nýsköpunar og frumkvöðlastarfs þar sem áhersla verður m.a. lögð á rannsóknir og nýtingu auðlinda hafsins, aðgerðir gegn súrnun sjávar og aðgerðir í loftslagsmálum til að mæta markmiðum Íslands í loftslags- og umhverfismálum.
  2. Sameiginlega verði unnið að breytingum á aðalskipulagi Breiðarinnar og nýju deiliskipulagi á grundvelli vinningstillögunnar „Lifandi samfélag við sjó“ sem unnin var af  arkitektastofunni Arkþing/Nordic og Eflu verkfræðistofu.  Það er markmið aðila að skipulagsvinnu verkefnisins ljúki á árinu 2025.

Framkvæmdastjóri félagsins er Valdís Fjölnisdóttir og í stjórn sitja: Gísli Gíslason, starfandi stjórnarformaður, Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraneskaupstaðar og Inga Jóna Friðgeirsdóttir, fjármálastjóri Brims.

Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims, Valldís Fjölnisdóttir, framkvæmdastjóri Breið Þróunarfélgs og Inga Jóna Friðgeirsdóttir, fjármálastjóri Brims.