Leiðbeiningar um tilkynningu til framboðs í stjórn Brims hf.
Þeim sem hyggjast gefa kost á sér til framboðs í stjórn félagsins er bent á að eftirfarandi reglur gilda um framboð samkvæmt samþykktum félagsins og lögum um hlutafélög nr. 2/1995:
Úr samþykktum félagsins:
Samkvæmt grein 5.1 í samþykktum félagsins ber að kjósa 5 menn í stjórn félagsins og er stjórnarkjör því aðeins gilt að kynjahlutföll séu sem jöfnust og hlutfall hvors kyns ekki lægra en 40%. Þá segir í gr. 5.3 í samþykktum:
Þeir sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarkjörs skulu tilkynna félagsstjórn um framboð sitt skemmst 5 dögum fyrir hluthafafund. Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal gefa, auk nafns frambjóðanda, kennitölu og heimilisfangs, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu. Þá skal einnig upplýsa um hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu.
Úr 63. gr.a hlutafélagalaga nr. 2/1995
Félagsstjórn skal fara yfir framboðstilkynningar og gefa hlutaðeigandi með sannanlegum hætti kost á því að bæta úr þeim göllum sem eru á tilkynningunni innan tiltekins frests. Ef ekki er bætt úr göllum á framboðstilkynningunni innan tilsetts frests úrskurðar félagsstjórn um gildi framboðs. Unnt er að skjóta niðurstöðu félagsstjórnar til hluthafafundar sem fer með endanlegt úrskurðarvald um gildi framboðs.
Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar hlutafélags skulu lagðar fram hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir hluthafafund.