Hlutabréfaverð BRIM
Fjárfestatengsl
Fjárhagsdagatal 2023
Birting fjárhagsupplýsinga á sér stað eftir lokun markaða. Staðsetning og tími kynningafunda er gefinn upp í sömu tilkynningu til Kauphallar.
- F4 202223 febrúar, 2023
- Aðalfundur 202323 mars, 2022
- F1 202317 maí, 2023
- F2 202324 ágúst, 2023
- F3 202316 nóvember, 2023
- F4 202322 febrúar, 2024

Félagið hefur verið skráð á markaði frá árinu 1992
Saga félagsins á hlutabréfamarkaði er löng en þann 15. desember 1992 var Brim sem þá hét Grandi hf. skráð á hlutabréfamarkað Verðbréfaþings Íslands. Gengi hlutabréfa félagsins hafði verið skráð hjá Verðbréfaþingi Íslands frá 1989 og gengu hlutir kaupum og sölum á opna tilboðsmarkaðnum á því tímabili.
Félagið var á aðallista Kauphallarinnar til ársins 2006 en færðist þá yfir á iSEC markað Kauphallarinnar.
Þann 25. apríl 2014 hófust viðskipti með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði NASDAQ kauphallarinnar á Norðurlöndum í kjölfar hlutafárútboðs stórra hluthafa á 27% hlutafjár félagsins.