Ársskýrsla Brims 2025


Ársskýrslu Brims 2025 fylgt úr hlaði
Tilgangur Brims er að reka útgerð, fiskvinnslu, annan mætvælaiðnað og skylda starfsemi. Það gerum við í sátt við náttúru og samfélag. Til að geta unnið að tilgangi félagsins þarf reksturinn að vera arðsamur og efnahagur traustur. Það var raunin á árinu 2025. Veiðar og vinnsla voru líkt og undanfarið í góðri sátt við náttúru og í samræmi við tilgang félagsins. Brim starfar í samfélagi sem samanstendur af starfsfólki, viðskiptavinum, hluthöfum og öðrum haghöfum sem finna má um allt land og víða um heim. Félagið leggur sig fram um virk og góð samskipti við alla þá sem láta sig starfsemi þess varða en það er trú okkar að traust verðmætasköpun félagsins skili sér í öflugra þjóðfélagi.
Við viljum vera virkir og öflugir þátttakendur í samfélaginu. Það gerum við með því að sinna vel okkar störfum, hámarka verðmæti aflans, leggja áherslu á nýsköpun og skapa forsendur til að greiða starfsfólki til sjós og lands góð laun. Öflugur rekstur og aukin umsvif auka síðan skattspor félagsins og þar með framlag okkar í sameiginlega sjóði. Við erum líka þátttakendur í samfélaginu með margvíslegum stuðningi við æskulýðs- og íþróttastarf, starfsemi mennta-, lista- og menningarfélaga og annað sem horfir til framfara.
Starfsmenn og fjölskyldur þeirra eru hjartað í því samfélagi sem Brim er hluti af. Við erum hluti af heild og erum sannfærð um að til þess að við getum eflt og bætt okkar samfélag þurfum við að vera sterk. Við róum öll í sömu átt.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims
