Þúfa hlýtur fegrunarviðurkenningu Reykjavíkurborgar
Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar árið 2017 voru veittarvið hátíðlega athöfn í Höfða í gær. Alls voru veittar fimm viðurkenningar fyrirhús, lóðir og sumargötu. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti viðurkenningarnar.
Þúfan fékk viðurkenningu fyrir athyglisvert og listrænt almenningsrými á svæðisem auðgar mannlífið og gefur nýtt sjónarhorn á borgarmyndina. VilhjálmurVilhjálmsson forstjóri HB Granda og Ólöf Nordal listakona tóku viðviðurkenningunni.
Ásamt Þúfu fengu eftirfarandi hús og lóðir viðurkenningu í gær:
Laugavegur 21, Kaffibrennslan
Sumargötur
Brekkustígur 5A og Blómvallagata 2
Vegna endurbóta á eldri húsum
Sléttuvegur 11-13 fjölbýlishúsalóð
Viðurkenningarnar voru veittar í samræmi við tilnefningar frávinnuhópum sem í sátu:
Vegna viðurkenningar fyrir lóðir fjölbýlishúsa ogfyrirtækja/stofnana
Björn Ingi Edvardsson, landslagsarkitekt á Umhverfis- og skipulagssviði.
Edda Ívarsdóttir borgarhönnuður á Umhverfis- og skipulagssviði.
Vegna viðurkenningar fyrir endurbætur á eldri húsum
María Gísladóttir arkitekt, Borgarsögusafni Reykjavíkur og
Margrét Þormar, arkitekt skipulagsfulltrúa á Umhverfis- og skipulagssviði.
Verkið Þúfa er eftir listakonuna Ólöfu Nordal. Þúfa er manngertátta metra grasivaxið fjall sem hægt er að ganga upp á eftir þar til gerðumstíg. Á toppnum trónir fiskihjallur þar sem þurrkaður er fiskur. Þúfa er brú ámilli náttúru og borgar. Verkinu er ætlað að virka bæði í nálægð og fjarlægð ogsést það víða að í borginni. Þeir sem ganga upp á toppinn fá að njóta einstilkomumesta útsýnis yfir Reykjavík sem völ er á. Verkið virkjar öllskilningarvitin og hefur yfir sér hlýju og kunnugleika. Formgerð Þúfunnar erónáttúruleg enda manngert fjall á manngerðu landi. Þúfa var vígð við hátíðlegaathöfn þann 21. desember 2013.