Fréttir02 jún 2025
Skýrar leikreglur forsenda góðs árangurs

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf. og formaður Samtaka fyrirtækja í
sjávarútvegi, segir í viðtali við Sjóarann, að ákvæði laga um sameign þjóðar á nytjastofnum þýði ekki að ríkið eigi fiskinn í sjónum. Þar er hvergi minnst á að ríkið eigi að leysa til sín allan arð af nýtingu af sjávarútvegsauðlindinni til að borga skuldir eða standa undir framkvæmdum sem stjórnmálamenn á hverjum tíma telja mikilvægar. Þá minnir hann á að ríkið er ekki þjóðin. Fólkið í landinu er miklu meira en það.
Lesa má viðtalið hér: