Óvenjulegur afli Viðeyjar RE leysti gátuna

Þegar áhöfnin á Viðey RE hafði híft upp trollið að morgni dags í október árið 2023 á Dohrn banka milli Íslands og Grænlands láu á dekkinu heillegir bútar af flaki timburskips með fágætu stýrishjóli og haug af selskinnum eins og Valgeir Ásgeirsson, stýrimaður, segir frá í grein í Fiskirfréttum, sem fjallar hátíðarkvöldverð á Ishavsmuseet í bænum Hareid í Vestur Noregi. Þangað er brakið sem áhöfnin á Viðey RE fann komið og hafa rannsóknir leitt í ljós það sem áhöfnin grunaði strax að þarna væri norskur selfangari, Brattind að nafni. Fimm skip, Brattind, Ringsel, Vårglimt, Buskø og Pels, frá Troms og Sunnmøre, fórust með allri áhöfn eða 79 manns í byrjun apríl 1952 þegur fellibylur skall á Vesturísnum norður af Íslandi þar sem selskipin voru að veiðum. „Þetta er ein sterkasta og harmrænasta saga í sögu norskra heimskautaveiða,“ sagði Bernt Brandal, borgarstjóri Hareid, við viðstadda þegar hann opnaði sýninguna um fundinn í Íshafssafninu. Í athöfninni í Hareid kom fram að flakið sem áhöfnin á Viðey RE fann hafi endanlega leyst gátuna um hvarf skipanna fyrir rúmum 70 árum.

