Fréttir28 feb 2023

Miklir umhleypingar en ágætur afli þegar gefur

,,Við erum búnir að vera 13 daga á veiðum og komnir með um 500 tonn af fiski upp úr sjó. Hér hafa verið miklir umhleypingar í og t.a.m. er nú búið að vera brjálað veður í um sólarhring. Mér skilst að veðrið eigi að ganga niður í kvöld en þar til verður lítið um veiði,” segir Arnar Haukur Ævarsson, skipstjóri á frystitogaranum Örfirisey RE, en skipið er nú að veiðum í norskri lögsögu í Barentshafi.

Að sögn Arnars Hauks hefur ótíðin valdið því að menn hafa víða leitað fyrir sér.

,,Við erum nú á Nordkappbanka en lengst austur og í leiðinni í norður höfum við farið á svokallaðan Marshrygg eða nánar til tekið á 73°15´N og 28°40´A.”

Arnar Haukur segir að kvótinn sé gefinn út í þorski og megi hlutfall aukaafla vera allt að 30%. Það sé misjafnt hve mikið megi veiða af öðrum tegundum en þorski. Þannig megi ufsa- og ýsuaflinn vera allt að 48-49% á meðan karfaaflinn megi ekki fara yfir 20%. Gullna reglan er sú að þorskur verði alltaf að vera í meirihluta í hverju einasta holi.

,,Þetta er ágætis fiskur sem við höfum verið að fá. Hann er vel haldinn af loðnuáti en við höfum nokkuð víða orðið varir við loðnu. Þorskurinn er á stærðarbilinu þrjú til fjögur kíló en maður sér alveg stöku vertíðarþorska inni á milli í aflanum,” segir Arnar Haukur en hann segir mikinn fjölda skipa á svæðinu stundum koma í veg fyrir að meiri afli fáist.

,,Hér er fjöldi Rússa auk heimamanna og Færeyinga og eins og gerist þá eru skipstjórnarmenn allra skipa fljótir að bregðast við aflafréttum. Því dregur oftar en ekki hratt úr veiðinni.”

Að sögn Anars Hauks eru fjögur íslensk skip nú á svæðinu. Auk Örfiriseyjar eru það nýi frystitogarinnn Sólberg ÓF og svo Björgvin EA og Harðbakur EA.

,,Sólberg fer áleiðis heim á leið á morgun en mér skilst að Harðbakur og jafnvel Björgvin muni landa ferskum afla í vinnslu í Honningsvåg. Sjálfir eigum við að koma til hafnar á Íslandi 23. mars en ég reikna með því að það taki tvo túra að veiða þorskkvóta Brims hér í norsku lögsögunni,” segir Arnar Haukur Ævarsson.