Breskir þingmenn heimsækja Brim

Hópur breskra þingmanna kynnti sér starfsemi Brims í opinberri heimsókn sinni hér á landi sl. föstudag. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, tók á móti gestunum og bauð þeim til hádegsiverðar þar sem þorskhnakki var framreiddur og fór Guðundur jafnframt yfir helstu þættina í rekstri fyrirtækisins. Þingmennirnir sem sitja í báðum deildum breska þingsins og eru fulltrúar ólíkra flokka sýndu fiskveiðistjórnuninni hér á landi mikinn áhuga og þeim árangri sem hún hefur skilað á undanförnum áratugum. Þingmennirnir eiga sæti í vinahópi Íslands á breska þinginu, sem hefur það hlutverk að efla tengsl þjóðþinganna. Sendinefndin heimsótti einnig m.a. forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, að Bessastöðum, utanríkisráðherra Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Alþingi Íslendinga þar sem forseti þingsins Þórunn Sveinbjarnardóttir tók á móti þeim.
Á myndinni frá vinstri er Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, Paulette Hamilton þingmaður frá Birmingham, Dame Karen Bradley frá Stafforshire, Fabian Hamilton frá Leeds, Martin Vickers frá Immingham, Alex Sobel frá Leeds, Baronessa Blower frá Lundúnum, Dame Harriett Baldwin frá Worchestershire og Mark Garnier frá Shropshire.