Aukin umsvif Brims og Icelandic í Kína

Umsvif Brims og dótturfélagsins Icelandic í Kína aukast sífellt enda verður Kína sífellt mikilvægara markaðssvæði fyrir fjölbreyttar afurðir félaganna. Nýverið hóf Air China reglubundið áætlunarflug á milli Keflavíkur og Peking og af því tilefni flaug íslensk viðskiptanefnd til Kína og bar heimsókn að á sama tíma og Icelandic tók þátt í einni stærstu sjávarútvegssýningu í Asíu, CFSE, í tuttugasta sinn.
Icelandic var með eigið sýningarsvæði á China Fisheries & Seafood Expo, CFSE, í síðasta mánuði og bauð þar fjölbreyttar íslenskar sjávarafurði, m.a. loðnu, makríl, síld, grálúðu, karfa, gulllax, þurrkaðan sundmaga og ferskan lax frá Háafelli. Þá voru vörur frá Lýsi kynntar og var mikill áhugi meðal gesta á vörum til manneldis og gæludýrafóðri. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sem leiddi íslensku sendinefndina heimsótti bás Icelandic á CFSE og tók þar til hendi svo eftir var tekið.
Fulltrúar Icelandic og Brims voru hluti af íslenska viðskiptasendinefndinni sem fylgdi utanríkisráðherra til Kína þar sem heimsótt var fiskvinnsla, fiskmarkaður, flutningsfyrirtæki, verslanir og fyrirtæki í netverslun og stafrænni markaðssetningu í borginni Qingdao. Þar gáfust mjög góð tækifæri til að efla tengs við viðskiptavini og samstarfsaðil auk þess sem læra mátti af því hvernig vinnslur selja sjávarafurðir beint til neytenda og hversu verslanir leggja mikla áherslu á þægindi, smærri neytendaumbúðir og vörur sem eru tilbúnar eða einfaldar í eldun og síðast en ekki síst á heimsendingar.

Kína verður sífellt mikilvægari markaður fyrir íslenskar sjávarafurðir. Á fyrri helmingi ársins 2026 jókst verðmæti innflutnings sjávarafurða til Kína um 25% frá sama tíma árið áður. Þróunin í botnfiskafurðum er sérstaklega áhugaverð fyrir íslenskan en verðmæti innflutnings þeirra jókst um 68% á sama tímabili.
Á þessu ári tekur Icelandic í fyrsta sinn þátt í China International Import Expo (CIIE) í Shanghai undir merkjum Íslandsstofu. CIIE er ein stærsta innflutningssýning Kína sem hefur breiðari skírskotun en CFSE, sem er sérhæfð sjávarútvegssýning. Þar koma saman erlend fyrirtæki og kínverskir kaupendur, dreifingaraðilar og smásalar úr fjölmörgum atvinnugreinum. Fyrir Icelandic er þetta því tækifæri til að kynna íslenskar sjávarafurðir á breiðari vettvangi og mynda ný viðskiptatengsl.
Neysla á sjávarafurðum eykst hröðum skrefum í Kína. Icelandic og Brim sjá fjölmörg tækifæri til að auka viðskipti og þjónustu þar í landi og til að auka umsvif sín ekki síst í ljósi þess að nú er reglulegt áætlunarflug í viku hverri á milli landanna. Það verður því áhugavert að fylgjast með starfsemi og auknum umsvifum félaganna í Kína á næstu misserum.