icon

Brim's Annual Report 2025

Fréttir29 sep 2025

Er Fiskistofa með röng gögn eða eru lagaákvæði óljós?

Er Fiskistofa með röng gögn eða eru lagaákvæði óljós?

Þorskígildi 10 þúsund tonna af grálúðu eru næstum jafnmörg og þorskígildi 90 þúsund tonna af makríl samkvæmt útreikningum Fiskistofu og því ætti söluverðmætin að vera áþekk vegna þess að tilgangur útreikninga á þorskígildum er að finna ígildi verðmæta annarra tegundi í samanburði við verðmæti á þorski.

En svo er alls ekki.

Verðmæti 90 þúsund tonna af makríl er þrisvar sinnum meira en verðmæti 10 þúsund tonna af grálúðu.

Brim spyr: Hvernig stendur á þessu? Er Fiskistofa með röng gögn eða eru lagaákvæði 19. gr. laga um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 um þorskígildisstuðla óskýr?

Brim hefur í áraraðir bent á að þorskígildisstuðlar séu gallaðir og þurfi skoðunar við til að endurspegla raunveruleikann sem á við í daglegu starfi Brims og sjávarútvegsins í heild. Hvernig er hægt að skilja umræðu um þorskígildi eða nota þessi þorskígildi sem stjórntæki í okkar sjávarútvegi?