Ný tækni þróuð fyrir markvissari og orkunýtnari veiðar

Á næstu árum verða nýjar lausnir fyrir markvissari og orkunýtnari veiðar þróaðar og prófaðar við Ísland. Vinnan er hluti af samstarfi Brims við Matís, Hafrannsóknastofnun, Hampiðjuna og Trackwell, sem til að mynda endurspeglast í alþjóðlega rannsóknaverkefninu Marine Guardian. Markmið þess er að nýta gögn og nýja tækni til að þróa enn frekar hagkvæmar, orkunýtnar og sjálfbærar veiðar.
Í verkefninu verða meðal annars prófaðar útfærslur við botnvörpuveiðar sem hafa að markmiði að bæta orkunýtni og virkni veiðarfæranna. Þá verða skynjarar, myndavélar og gervigreind nýtt til að safna upplýsingum um veiðarnar og styðja við ákvarðanatöku um borð. Hafrannsóknastofnun hefur þegar hafið mælingar á orkunotkun við botnvörpuveiðar þar sem bornar eru saman mismunandi útfærslur veiðarfæra. Nánar má lesa um þær rannsóknir á vef Hafrannsóknastofnunar.