Brim fagnar íslenskri tungu – veitir starfsfólki í íslenskunámi viðurkenningar

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, veitir þeim Maríu Ceceliu Sigurðsson og Reynaldo Curato Renegado viðurkenningar.
Í tilefni af Degi íslenskrar tungu vekur Brim þessa dagana með ýmsum hætti athygli á mikilvægi tungumálsins í íslensku samfélagi. Hjá fyrirtækinu starfar fólk frá 25 þjóðlöndum sem talar ólík móðurmál. Í áraraðir hefur félagið staðið fyrir íslenskukennslu fyrir starfsfólk sem ekki hefur íslensku að móðurmáli og hefur því frumkvæði verið vel tekið af starfsfólki.
Reynsla og þekking af því starfi hefur m.a. nýst við mótun stafrænna lausna í íslenskukennslu sem hugbúnaðarfyrirtækið Bara tala hefur þróað til að mæta þörfum atvinnulífsins og hjálpa starfsfólki að læra og nota íslensku í tengslum við störf sín.
Á þriðjudegi í Viku íslenskrar tungu hjá Brimi veitti Pálmi Hafþór Ingólfsson, fræðslustjóri félagsins, starfsfólki og íslenskunemum viðurkenning. María Cecelia Sigurðsson hlaut viðurkenningu fyrir bestan árangur í sept-nóv áskorun Brims og Bara tala en hún hefur lokið um 170 klukkustundum í Bara tala appinu en það samsvarar nærri mánaðarvinnu í átta tíma á hverjum virkum degi. Þá var því fagnað að Reynaldo Curato Renegado fékk nýlega íslenskan ríkisborgararétt eftir rúmlega 20 ára búsetu hér og lengst af hefur hann starfað hjá Brimi. Hann fékk blómvönd í íslensku fánalitunum í tilefni að ríkisborgararéttinum. Þess má geta að 12 ára dóttir hans fékk einnig íslenskan ríkisborgararétt. Þá tók Vladimir Funcic yfirverkstjóri í vinnslunni Norðurgarði við viðurkenningu úr hendi Guðmundar Kristjánssonar sem Brim hlaut fyrr í haust fyrir frumkvæði og framtak í íslenskurkennslu fyrir starfsfólk frá Íslensku málnefndinni. Funcic tók við viðurkenningunni fyrir hönd 14 annarra starfsmanna sem ásamt honum hafa lokið a.m.k. 100 klukkustundum í Bara tala appinu og eru því verðugir fulltrúar starfsfólks Brims.