Gestkvæmt hjá Brimi á sjávarútvegssýningu í Barcelona
Fjölmargir gestir lögðu leið sína á sýningarsvæði Brims og Icelandic Asia á sýningunni Seafood Expo Global í Barcelona en hún var haldin nýverið og er ein sú stærsta á markaði sjávarafurða í heiminum. Guðmundur Kristánsson, forstjóri Brims, ástamt starfsmönnum fyrirtækjanna tóku vel á móti viðskiptavinum þeirra, samstarfsaðilum og öðrum gestum. Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, hélt opnunarávarp ásamt Agnesi Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Icelandic Asia.
Þórarinn Snæfeld, matreiðslumeistari Brims í Norðurgarði í Reykjavík, sá um veitingar og bauð upp á rétti úr m.a. karfa, síld, kolmunna, gulllaxi og loðnuhrognum og var gerður að góður rómur að einstökum réttum hans. Þá var einnig boðið upp á hin árlega Masago bjór sem framleiddur er fyrir Icelandic Asia og inniheldur loðnuhrogn og Kurugoma frá Japan.

