icon

Brim's Annual Report 2025

Fréttir25 apr 2026

Gestkvæmt hjá Brimi á sjávarútvegssýningu í Barcelona

Gestkvæmt hjá Brimi á sjávarútvegssýningu í Barcelona

Fjölmargir gestir lögðu leið sína á sýningarsvæði Brims og Icelandic Asia á sýningunni Seafood Expo Global í Barcelona en hún var haldin nýverið og er ein sú stærsta á markaði sjávarafurða í heiminum. Guðmundur Kristánsson, forstjóri Brims, ástamt starfsmönnum fyrirtækjanna tóku vel á móti viðskiptavinum þeirra, samstarfsaðilum og öðrum gestum. Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, hélt opnunarávarp ásamt Agnesi Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Icelandic Asia.

Agnes Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Japan, Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, og Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, bjóða gesti velkomna.
Agnes Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Japan, Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, og Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, bjóða gesti velkomna.


Þórarinn Snæfeld, matreiðslumeistari Brims í Norðurgarði í Reykjavík, sá um veitingar og bauð upp á rétti úr m.a. karfa, síld, kolmunna, gulllaxi og loðnuhrognum og var gerður að góður rómur að einstökum réttum hans. Þá var einnig boðið upp á hin árlega Masago bjór sem framleiddur er fyrir Icelandic Asia og inniheldur loðnuhrogn og Kurugoma frá Japan.

Þórarinn Snæfeld, matreiðslumeistari Brims, reiðir fram kræsingar úr íslensku hráefni.
Þórarinn Snæfeld, matreiðslumeistari Brims, reiðir fram kræsingar úr íslensku hráefni.


Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ræðir við gesti á sýningunni.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, ræðir við gesti á sýningunni.