Fréttir06 nóv 2026
Brim kaupir eignir Matorku

Brim hf. hefur fyrir hönd nýstofnaðs dótturfyrirtækis keypt allar eignir þrotabús Matorku ehf. en félagið hefur í áraraðir sérhæft sig í eldi á bleikju. Brim hyggst byggja á þeirri starfsemi og þekkingu sem þegar er til staðar hjá Matorku og leggja áherslu á hagkvæman rekstur, vörugæði og sjálfbæran vöxt til framtíðar. Áætluð framleiðsla á næsta ári er rúmlega 1.000 tonn af heilli bleikju.
Með kaupunum skapast tækifæri til að nýta víðtæka þekkingu og reynslu Brims á vinnslu matvæla og markaðssetningar og sölu þeirra á alþjóðlegum mörkuðum.
Kaupin eru gerð með hefðbundnum fyrirvörum svo sem samþykki Samkeppniseftirlits og að tilskilin leyfi fáist vegna starfseminnar