Brim fagnar íslenskri tungu – samtal við forseta Íslands

Starfsfólk Brims fagnar íslenskri tungu.
Brim og hugbúnaðarfyrirtækið Bara tala taka höndum saman í tilefni af Degi íslenskrar tungu til að minna á að íslenskukennsla fyrir erlenda íbúa landsins er verkefni okkar allra, - samfélagsins alls. Fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir og einstaklingar þurfa að taka undir með þeim útlendingum sem vilja bara tala íslensku og nota tungumálið allsstaðar og alltaf.
Brim vekur þessa dagana með ýmsum hætti athygli á mikilvægi tungumálsins í íslensku samfélagi. Hjá fyrirtækinu starfar fólk frá 25 þjóðlöndum sem talar ólík móðurmál. Í áraraðir hefur félagið staðið fyrir íslenskukennslu fyrir starfsfólk sem ekki hefur íslensku að móðurmáli og hefur því frumkvæði verið vel tekið af starfsfólki. Reynsla og þekking af því starfi hefur m.a. nýst við mótun stafrænna lausna í íslenskukennslu sem hugbúnaðarfyrirtækið Bara tala hefur þróað til að mæta þörfum atvinnulífsins og hjálpa starfsfólki að læra og nota íslensku í tengslum við störf sín.
Til að undirstrika hlutverk samfélagsins við að efla íslenska tungu boða Brim og Bara tala til opins samtals um íslenskuna í Iðnó fimmtudaginn 19. nóvember nk. 16.30. Þar mun Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, eiga samtal við Pálma Hafþór Ingólfsson, fræðslustjóra Brims, um hvað hvert og eitt okkar getur gert til að bæta og auðga íslenksunám útlendinga og þar með efla og treyst stöðu íslenskrar tungu. Fleiri munu taka þátt í þessu opna samtali um íslenskuna m.a., Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi, Peter Weiss,stjórnarformaður Gefum íslenskunni séns og Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims. Þá mun Jökull Júlíusson, söngvari og lagahöfundur, stíga á stokk og taka lagið.
Framtak Brims hefur vakið athygli eins og sjá má og heyra þar sem Pálmi Hafþór var í viðtali á þriðjudagsmorgni í Bítinu á Bylgjunni.
