Breytingar í uppsjávarfiskvinnslu Brims á Vopnafirði

Frá því að bolfiskvinnslu var hætt á Vopnafirði árið 2018 hefur vinnslan orðið árstíðabundnari. Á sama tíma hafa aflaheimildir í makríl dregist saman og liggur fyrir að aflamark í makríl verður skorið niður verulega frá síðasta ári. Þrátt fyrir þessar sveiflur í rekstrarumhverfi félagsins á liðnum árum þá hefur fjöldi heilsársstarfa verið sambærilegur og þegar bolfiskvinnslan var enn starfandi fyrir um sex árum síðan.
Fyrirtækið hefur ákveðið að ráðast í breytingar í uppsjávarvinnslu félagsins á Vopnafirði. Breytingarnar fela í sér að auka hlut tímabundna vertíðarstarfa í stað heilsársstarfa, sem verða framvegis skipulögð sem tímabundin vertíðarstörf í takt við umfang verkefna og árstíðabundna starfsemi vinnslunnar.
Ákvörðunin var tekin eftir skoðun á rekstri vinnslunnar og þeirri þróun sem orðið hefur á rekstrarumhverfi félagsins á síðustu árum. Stjórnendur munu engu að síður áfram kappkosta að reyna að skapa heilsársstörf á Vopnafirði, en markmiðið er að reka starfsemina á sjálfbæran hátt til lengri tíma.
Fyrirtækið gerir sér grein fyrir því að breytingarnar munu hafa áhrif á starfsfólk og nærsamfélagið. Breytingarnar munu ná til 20 starfsmanna á Vopnafirði og taka gildi frá og með 1. júlí nk. Haft var samráð við fulltrúa stéttarfélaga starfsmanna og mun félagið bjóða þessum hópi samtal um næstu skref og möguleika á vertíðarstörfum hjá félaginu.