Starfsmannastefna

Brim er eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi. Reynsla og þekking á nýtingu auðlindar og framleiðslu sjávarafurða endurspeglast í öllu starfi Brims.
Hlutverk starfsfólks taka til allrar virðiskeðjunnar, þ.e. veiða, vinnslu, sölu og dreifingu á afurðum félagsins.
Brim leggur áherslu á að innan fyrirtækisins starfi hæft og traust starfsfólk sem af fagmennsku og ábyrgð tryggir sjálfbæra nýtingu og hagkvæmni í umgengni við auðlindina. 

Vellíðan og starfsandi

Brim er traustur vinnustaður þar sem stjórnendum og starfsmönnum er annt um vellíðan og heilbrigði samstarfsfólks síns. 

Brim er fjölskylduvænn vinnustaður þar sem leitast er við að starfsmenn geti gætt jafnvægis milli vinnu og einkalífs. Fjölbreytileiki starfa hjá Brim leiðir til þess að leita þarf ólíkra leiða eftir aðstæðum á hverjum stað til að ná þessu markmiði.

Brim er jafnréttissinnaður vinnustaður þar sem leitast er við að fá jafnt karla og konur til starfa í hinum ólíku starfahópum vinnustaðarins. Óheimilt er að mismuna starfsmönnum hjá Brim vegna kyns, kynhneigðar eða ólíks uppruna. Brim vinnur eftir aðgerðaáætlun í jafnréttismálum sem er endurskoðuð reglulega.

Einelti eða kynferðisleg áreitni er ekki liðin hjá Brim. Til er aðgerðaráætlun um viðbrögð ef upp kemur grunur um einelti eða áreitni á vinnustaðnum. 

Við sem störfum hjá Brim:

  • Komum fram af heilindum og virðingu í starfi og erum fyrirtækinu til sóma. 
  • Sýnum samstarfsfólki okkar virðingu og traust. 
  • Berum virðingu fyrir ólíkum uppruna, skoðunum og fjölmenningu.

Hæfni og þjálfun, ráðningar, móttaka nýliða og starfslok

Við ráðningar er lögð áhersla á að fá til starfa hæfa, trausta og árangursmiðaða einstaklinga. 

Brim leggur áherslu á að hjá félaginu starfi starfsfólk með framúrskarandi hæfni og fyrirtækið fjárfestir markvisst í fræðslu og þjálfun starfsmanna. 

Staðið er faglega að ráðningum og starfslokum.

Stefna Brims er að hafa virðingu og sveigjanleika að leiðarljósi við starfslok.

Við sem störfum hjá Brim:

  • Öflum okkur þekkingar og þjálfunar sem við þörfnumst í starfi.
  • Höfum frumkvæði að því að sækja okkur þekkingu og að þróast og þroskast í starfi. 

Samskipti og upplýsingamiðlun

Samskipti hjá Brim eru persónuleg og byggjast á heilindum, tillitssemi og virðingu. Brim leggur áherslu á að starfsfólk sé vel upplýst um starfsemi fyrirtækisins.

Við sem störfum hjá Brim:

  • Miðlum upplýsingum innan fyrirtækis um störf okkar.
  • Öflum okkur þeirra upplýsinga sem við þörfnumst vegna starfa okkar. 

Skipulag

Brim leggur áherslu á skýrt og skilvirkt skipulag og jafnframt að staðið sé við gerðar áætlanir. Í því felst að starfsfólk tileinki sér stefnu Brim og þekki hlutverk sitt í starfseminni. Stjórnskipulag fyrirtækisins byggist á því að boðleiðir milli veiða og vinnslu séu sem stystar. Þannig gerir það félaginu kleift að hámarka virði afurða sinna sem og bregðast skjótt við breyttum aðstæðum á markaði.

Við sem störfum hjá Brim:

  • Tileinkum okkur stefnu Brim. 
  • Þekkjum hlutverk okkar í starfseminni.

Samvinna og árangur

Brim er framsækið fyrirtæki í sjávarútvegi. Lögð er áhersla á að samvinna starfsfólks og deilda sé skilvirk og góð. Árangur starfsfólks og deilda er lykilatriði í starfseminni þar sem starfsfólk stuðlar að framförum og þróun.

Við sem störfum hjá Brim:

  • Veitum hvert öðru uppbyggilega rýni og aðstoð við úrlausn verkefna. 
  • Vinnum með einstaklingum og deildum á skilvirkan og árangursmiðaðan hátt. 
  • Erum stundvís, vandvirk, áreiðanleg og reglusöm og förum eftir fyrirmælum og reglum á vinnustaðnum. 
  • Sinnum störfum okkar af fagmennsku, stolti og alúð. 
  • Erum móttækileg fyrir nýjungum og erum úrræðagóð og lausnamiðuð. 
  • Tökum ábyrgð á verkefnum okkar, vinnum þau vel og skilum á réttum tíma.

Stjórnun og endurgjöf

Stjórnendur bera ábyrgð á starfsemi Brim og árangri fyrirtækisins. 

Við sem erum í stjórnendahlutverki hjá Brim:

  • Veitum starfsfólki okkar endurgjöf um störf þeirra og ræðum við þau um hlutverk, árangur og markmið í starfi. 
  • Hvetjum starfsfólk okkar til dáða, styðjum við störf þeirra og gefum okkur tíma til að fara yfir verkefnin. 
  • Stuðlum að því að starfsfólk viti hvaða áherslur eru lagðar í starfseminni hverju sinni og hvaða áhrif það hefur á störf þeirra.
  • Stuðlum markvisst að uppbyggingu jákvæðrar og árangursmiðaðrar fyrirtækjamenningar Brims.

Vinnuumhverfi

Brim leggur áhersla á gott vinnuumhverfi, öryggi og góðan aðbúnað starfsmanna. Við leggjum áherslu á heilsu og öryggi starfsfólks og vinnum markvisst að því að draga úr hættu við vinnu og í starfsumhverfi. Markvisst er unnið að öryggis- og vinnuverndarmálum með öryggisfræðslu. Við leitumst við að tryggja öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi þar sem einelti, ofbeldi og kynferðisleg áreitni er með öllu óheimilt. Grípa skal strax til viðeigandi aðgerða þegar grunur leikur á að brot hafi verið framið.

Við sem störfum hjá Brim:

  • Fylgjum öryggisreglum á vinnustað. 
  • Tökum þátt í öryggisfræðslu og kynnum okkur reglur.
  • Bendum á það sem betur má fara í öryggismálum.

Starfskjör

Brim er traustur vinnuveitandi sem virðir ávallt kjarasamninga og lögbundin réttindi starfsmanna. Laun og kjör starfsfólks Brims taka mið af kjarasamningum. Þar sem kjarasamningar kveða ekki á um launakjör starfsfólks taka laun mið af inntaki starfa, álagi, hæfni og árangri starfsfólks.